Fréttir

Fengu öll verðlaun á EM!

Selfoss átti átta fulltrúa í landsliðum Íslands sem kepptu á Evrópmótinu í hópfimleikum sem fram fór í Slóveníu um síðustu helgi.Þær Aníta Sól Tyrfingsdóttir og Júlíana Hjaltadóttir urðu Evrópumeistarar með stúlknaliðinu sem átti frábæran dag en þær fengu hæstu einkunn bæði í dansi og á trampólíni.Eva Grímsdóttir var fulltrúi Selfoss í kvennaliðinu sem eftir harða baráttu endaði í öðru sæti tæplega 0,3 frá gullinu.Hekla Björt Birkisdóttir keppti með blönduðu liði unglinga sem stóð sig frábærlega og enduðu í þriðja sæti á eftir sterkum liðum Danmerkur og Noregs.Í blönduðu liði fullorðinna átti Selfoss fjóra fulltrúa þau Margréti Lúðvígsdóttur, Eystein Mána Oddsson, Konráð Oddgeir Jóhannsson og Rikharð Atla Oddsson þau áttu frábæran dag og hækkuðu sig um tvö sæti frá því úr undanúrslitunum og nældu sér í bronsverðlaun.Þetta öfluga íþróttafólk hefur æft fimleika frá barnsaldri og lagt mjög hart að sér við æfingar. Undirbúningur landsliða undir Evrópumótið hefur staðið í tíu mánuði og hafa þau æft mjög stíft með landsliðunum síðustu sex mánuði í allt að 20 tíma á viku.Einnig er fjallað um árangur landsliðsfólksins okkar og móttökuna á vef .Það er mjög ánægjulegt að sjá að þrotlausar æfingar hafa skilað þessum frábæra árangri og ekki á hverjum degi sem Umf.

Öflugt starf yngri flokka

Nú er handboltavertíðin hjá yngri flokkum komin á fullt og allir flokkar hafa leikið sína fyrstu leiki á Íslandsmótinu. Það er óhætt að segja að starfið farið vel af stað og allir flokkar búnir að standa sig vel það sem af er.Sérstaka athygli vekur árangur strákaliða Selfoss í árgöngum 2001, 2003 og 2006 þar sem þeir eru efstir á Íslandsmótinu í dag.

Haukur með U-17 til Frakklands

Haukur Þrastarson er í 16 manna hópi í handbolta sem Heimir Ríkarðasson hefur valið til æfinga fyrir mót í Amiens í Frakklandi 3.-5.

Öruggur sigur Selfyssinga

Kristrún Steinþórsdóttir (á mynd) og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir leiddu stelpurnar okkar til öruggs sigurs á Fylki í Olís-deildinni 30-24 á laugardag.

Tveir Selfyssingar á Norður-Evrópumótið

Tveir Selfyssingar eru í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í Norður-Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Þrándheimi í Noregi helgina 22.

EM förum fagnað í Baulu

EM ævintýrið er á enda og krakkarnir á leiðinni heim frá Slóveníu. Þau stóðu sig öll frábærlega og af því tilefni verður tekið vel á móti þeim mánudaginn 17.

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum hafnaði í 2. sæti

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum hafnaði í 2. sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum í dag.Sáralitlu munaði á því sænska og því íslenska eða einungis 0.294 stigum.

Brons í flokki blandaðra liða

Íslenska liðið í blönduðum flokki átti ærið verkefni fyrir höndum í dag eftir að hafa lent í 5. sæti í undankeppninni. Markmiðið var sett á verðlaun og til að það gengi upp þurfti liðið að bæta sig á öllum áhöldum.Dagurinn byrjaði því ekki vel því Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman veiktist í nótt og urðu þjálfarar því að kippa inn varamanni.

Stúlknaliðið algerlega brilleraði

Íslenska stúlknalandsliðið mætti heldur betur vel stemmt til leiks í dag.Stelpurnar byrjuðu á gólfi og gerðu sér lítið fyrir og bættu einkunnina frá því í undanúrslitum um 1.733.

UMFÍ fagnar lýðheilsustefnunni

Ráðherranefnd um samræmingu mála samþykkti í seinustu viku  ásamt áætlun um aðgerðir sem stuðla eiga að heilsueflandi samfélagi.