Fréttir

1. flokkur Íslandsmeistarar!

Miðvikudaginn 17. apríl síðastliðinn fór fram Íslandsmót fullorðinna í hópfimleikum. Fimleikadeild Selfoss átti þar eitt lið, lið í 1.

Minningarmót fimleikadeildar Selfoss

Laugardaginn 13. maí síðastliðinn fór fram árlegt Minningarmót fimleikadeildar Selfoss. Mótið er uppskeruhátíð deildarinnar og er haldið til minningar um Magnús Arnar Garðarsson, sem var félagi og þjálfari í deildinni en hann lést árið 1990.

Selfoss Lengjubikarmeistararí B-deild 2019

Selfoss tryggði sér í dag sigur í B-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu með sannfærandi 4-0 sigri á Dalvík/Reyni í Akraneshöllinni.Hrvoje Tokic kom Selfyssingum yfir á 22.

Bónusmótið um helgina

Um helgina fer fram Bónusmótið í handbolta, en það er stærsta handboltamót á Íslandi. Mótið er fyrir iðkendur 7. flokks og eru þátttakendur um 850 á því.

Ómar Vignir inn í Heiðurshöll Selfoss

Ómar Vignir Helgason var tekinn inn í Heiðurshöll Selfoss í hálfleik í leik Selfoss og ÍR á laugardaginn s.l. Til að komast inn í Heiðurshöll Selfoss þarf að hafa leikið með félaginu í 10 ár.

Selfoss áfram í undanúrslit eftir sigur á ÍR

Selfoss er komið áfram í undanúrslit Íslandsmótsins eftir dramatískan eins marks sigur á ÍR í Austurbergi í kvöld, 28-29. Selfoss vann því einvígið samtals 2-0 og mætir Val í undanúrslitum.Selfoss byrjaði betur og komst 0-1 yfir, ÍR-ingar tóku síðan við og leiddu leikinn fram að 55.

Naumur sigur á ÍR í fyrsta leik

Selfoss vann ÍR 27-26 í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í Hleðsluhöllinni í gær.Leikurinn var jafn framan af en Selfoss náði fjögurra marka forskoti undir lok fyrri hálfleiks, staðan í hálfleik var 15-13.

Vorhappadrætti handknattleiksdeildar

Hafin er sala miða í vorhappadrætti handknattleiksdeildar Selfoss. Vinningar eru af fáheyrðum gæðum og heildaverðmæti rúm ein milljón króna.Um er að ræða eina stærstu fjáröflun deildarinnar og því hvetjum við alla til að taka vel á móti iðkendum sem verða á ferðinni í net- og raunheimum næstu tvær vikur.

Landsliðsæfingar hjá U-15

Það voru öflugir Selfyssingar sem æfðu með U-15 ára landsliði karla og kvenna um síðustu helgi í Kórnum. Það voru þeir Daníel Þór Reynisson, Sæþór Atlason, Hans Jörgen Ólafsson og Einar Gunnar Gunnlaugsson sem æfðu með U-15 ára landsliði karla og Tinna Sigurrós Traustadóttir sem æfði með U-15 ára landsliði kvenna. Einar Guðmundsson er þjálfari liðanna.Mynd: Daníel Þór Reynisson, Sæþór Atlason, Tinna Sigurrós Traustadóttir, Hans Jörgen Ólafsson og Einar Gunnar Gunnlaugsson.

Kelsey Wys í Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska markvörðinn Kelsey Wys um að leika með liði félagsins í Pepsi Max deild kvenna í sumar.   Selfoss hafði áður framlengt samning markvarðarins Caitlyn Clem til tveggja ára en hún meiddist illa í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum í vetur og mun ekki leika knattspyrnu í sumar.   Wys er reyndur markvörður, 28 ára gömul, en hún kemur til Selfoss frá Washington Spirit í bandarísku atvinnumannadeildinni.