Fréttir

Fimm Selfyssingar í æfingahópi

Fimm piltar frá Selfossi hafa verið valdir í U-15 ára landsliðið sem kemur saman til æfinga fyrstu helgina í nóvember.Heimir Ríkarðsson landsliðsþjálfari u-15 ára landsliðsins hefur valið þrjá rúmlega 20 manna æfingahópa. Fyrsti hópurinn mun æfa mánudag til fimmtudags og seinni tveir hóparnir munu æfa föstudag til sunnudags.Fimm Selfyssingar eru í þriðja hópnum en það eru markverðirnir Alexander Hrafnkelsson, og Matthías Bjarnason, línumaðurinn Leó Snær Róbertsson, örvhenta skyttan Guðjón Baldur Ómarsson og leikstjórnandinn Haukur Þrastarson.Þeir Alexander og Haukur er báðir ári yngri en flestir í þessum hópi og koma úr hinum sigursæla 2001 árgangi Selfoss.eg

Sigur gegn ÍH

Strákarnir í meistaraflokki karla spiluðu gegn ÍH á föstudagskvöldið. Selfyssingar byrjuðu betur og náðu forskoti strax, staðan eftir 14 mínútur var 6-4 fyrir Selfoss.

Tap í Suðurlandsslagnum

Meistaraflokkur kvenna tapaði á móti ÍBV í Olís-deildinni á laugardaginn. Okkar stelpur áttu ekki góðan fyrri hálfleik og voru 17 – 9 undir í hálfleik.

Dregið í Coca Cola bikarnum

Í gær var dregið í 16 liða úrslit kvenna og 32 liða úrslit karla í Coca Cola bikarnum. Jafnframt var skrifað undir samstarfssamning við Vífilfell til næstu þriggja ára en keppnin mun áfram bera heitið Coca Cola bikarinn.Stelpurnar okkar sækja FH heim en önnur lið sem mætast í 16 liða úrslitum kvenna eru: Fram-Grótta, Fjölnir-Fylkir, HK-KA/Þór, Afturelding-ÍR, ÍBV 2-Haukar og Stjarnan-ÍBV.

Góður sigur Selfoss

Það gengur vel hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en þær sigruðu KA/Þór um helgina. Eftir sigurinn eru þær í 6. sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki.KA/Þór byrjaði leikinn betur, var einu til tveimur mörkum yfir í upphafi leiks en lið Selfoss fór fljótlega í gang og jafnt var á flestum tölum seinni hluta fyrri hálfleiksins.

Selfoss með sigur í grannaslagnum

Það var sannkallaður Selfoss slagur þegar Selfoss og nýstofnað lið Mílunnar mættust í vikunni í íþróttahúsi Vallaskóla. Það var vart við smá taugatitring hjá báðum liðum enda þekkjast allir þessir leikmenn vel, eiga það sameiginlegt að hafa klæðst vínrauðu og bæði lið komin til að sanna sig og ná í stig.

Sex Selfyssingar í æfingahópum HSÍ

Alls eru sex leikmenn Selfoss í æfingahópum u-19 ára og u-21 árs landsliðum karla sem æfa seinustu vikuna í október.Einar Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Guðjón Ágústsson í hópinn.

Aron Óli með landsliðinu til Frakklands

Selfyssingurinn Aron Óli Lúðvíksson mun verja mark u-17 ára landsliðs karla sem tekur þátt í fjögurra liða móti í Frakklandi. Liðið, sem leikur undir stjórn Kristjáns Arasonar og Konráðs Olavssonar, fer utan 29.

Frábær árangur hjá Selfoss

Strákarnir á eldra ári í 6. flokki spiluðu á fyrsta móti vetrarins um seinustu helgi. Þar vorum við í þeirri stöðu að eiga tvö lið í efstu deild, sem er afar sjaldgjæft.Selfoss 1 urðu deildarmeistarar eftir að hafa unnið alla sína leiki, Selfoss 2 urðu í þriðja sæti.

Fjölmennur 5. flokkur í Vestmannaeyjum

Fimmti flokkur karla og kvenna fóru til Vestmannaeyja um seinustu helgi og kepptu á fyrsta móti vetrarins. Hvorki fleiri né færri en 47 krakkar frá Selfossi fóru á mótið sem skipuðu fimm lið.